Atvinnuleysisbætur

Fimmtudaginn 28. nóvember 2002, kl. 11:19:41 (1825)

2002-11-28 11:19:41# 128. lþ. 38.6 fundur 231. mál: #A atvinnuleysisbætur# fsp. (til munnl.) frá félmrh., Fyrirspyrjandi JóhS (um fundarstjórn)
[prenta uppsett í dálka] 38. fundur, 128. lþ.

[11:19]

Fyrirspyrjandi (Jóhanna Sigurðardóttir) (um fundarstjórn):

Herra forseti. Svör hæstv. ráðherra eru svo rýr og svo til skammar, miðað við þá tekjuhópa sem við erum hér að tala um, að ég tel fulla ástæðu til að efna til umræðu utan dagskrár um stöðu lágtekjuhópanna í þjóðfélaginu. Ég kem því hér með á framfæri og ósk til hæstv. ráðherra um að taka þátt í þeirri umræðu.