Vinnutími sjómanna

Mánudaginn 02. desember 2002, kl. 16:53:47 (1963)

2002-12-02 16:53:47# 128. lþ. 43.5 fundur 390. mál: #A vinnutími sjómanna# (EES-reglur) frv., samgrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 43. fundur, 128. lþ.

[16:53]

Samgönguráðherra (Sturla Böðvarsson) (andsvar):

Herra forseti. Þetta er tímanna tákn eins og hv. þm. Guðjón A. Kristjánsson benti á að aðgangur stráklinga að fiskveiðum sé takmarkaður, að þeir megi ekki fara til sjós. En um þetta er víðtækt samkomulag allra aðila, sjómannasamtaka og útvegsmanna, að láta þessar reglur yfir okkur ganga. Ég flyt þær hér í frumvarpsformi inn í þingið en undirstrika það eitt að um þetta er víðtækt samkomulag allra aðila sem málið varðar mest.