Tilkynning um dagskrá

Þriðjudaginn 03. desember 2002, kl. 13:31:09 (1975)

2002-12-03 13:31:09# 128. lþ. 44.92 fundur 289#B tilkynning um dagskrá#, Forseti GuðjG
[prenta uppsett í dálka] 44. fundur, 128. lþ.

[13:31]

Forseti (Guðjón Guðmundsson):

Að lokinni atkvæðagreiðslu um fyrstu fimm dagskrármálin fer fram umræða utan dagskrár um leiðtogafundinn í Prag og þátttöku Íslands í hernaðarstarfsemi á vegum NATO. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. utanrrh. verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.

Forseti vill geta þess að kl. þrjú er von á forsætisráðherra Rúmeníu í Alþingishúsið.