Krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi

Miðvikudaginn 04. desember 2002, kl. 15:04:13 (2072)

2002-12-04 15:04:13# 128. lþ. 46.7 fundur 367. mál: #A krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., MF
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 128. lþ.

[15:04]

Margrét Frímannsdóttir:

Virðulegi forseti. Ég tek undir þær þakkir sem fram komu í máli hv. þm. Ágústs Einarssonar um frumkvæðið sem hv. þm. Árni Ragnar Árnason hefur sýnt varðandi forvarnir gegn krabbameinssjúkdómum í meltingarvegi. Eins þakka ég hæstv. ráðherra svörin, en spyr þó vegna þess að þál. var samþykkt síðasta vor eftir heilmiklar umræður og umfjöllun sem hún fékk í heilbr.- og trn. hvort gert sé ráð fyrir því annaðhvort hjá landlæknisembættinu eða í ráðuneytinu að menn geti mætt þeim kostnaði sem það hefur í för með sér og kom fram í álitum að mig minnir ýmissa umsagnaraðila varðandi tillöguna. Þá voru gerðar grófar kostnaðaráætalnir og nú líður að lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir næsta ár og mig langar að spyrja hvort gert sé ráð fyrir því í fjárlögum að ráðuneytið mæti þeim kostnaði svo hefja megi þetta starf á næsta ári.