Krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi

Miðvikudaginn 04. desember 2002, kl. 15:07:56 (2074)

2002-12-04 15:07:56# 128. lþ. 46.7 fundur 367. mál: #A krabbameinssjúkdómar í meltingarvegi# fsp. (til munnl.) frá heilbrrh., heilbrrh. (svar)
[prenta uppsett í dálka] 46. fundur, 128. lþ.

[15:07]

Heilbrigðisráðherra (Jón Kristjánsson):

Herra forseti. Ég vil endurtaka það sem ég hef áður sagt um mikilvægi þessa máls og þörfina á því að vanda þennan undirbúning vel. Ég tek undir að það er sjálfsagt að nýta áhuga þann sem er í samfélaginu á þessum málum og ég hef orðið var við hann og átt viðtöl við ýmsa aðila sem hafa sýnt þessu máli sérstakan áhuga.

Eins og kom fram í svari mínu við fyrirspurninni er landlæknir að semja tillögur í þessu efni, hvernig að þessu verður staðið, hvað yrði hratt farið og þær tillögur koma til mín til frekari ákvarðanatöku.

Af þeim ástæðum hefur ekki verið settur enn þá verðmiði á þetta mál. Verðmiði á málið mun fylgja þeim tillögum sem koma frá landlækni og ég verð þá að kynna það á þeim tíma sem það liggur fyrir. Ég verð að kynna það fjárveitingavaldinu og ríkisstjórn, en þessi verðmiði liggur ekki fyrir núna. Það eru því ekki fjárveitingar í fjárlagafrv. núna varðandi þetta verkefni, en þegar ákveðið er hvernig að þessu verður staðið og hve hratt farið verður í þetta, þá kemur í ljós hver fjárþörfin er. Ég endurtek að ég mun kynna þetta þegar það liggur fyrir.