Ágúst Einarsson (andsvar):
Herra forseti. Þegar hv. þm. gagnrýnir lítinn hagvöxt er hann að gagnrýna sína eigin ríkisstjórn. Það er hún sem ber ábyrgð á þessum litla hagvexti og ekki má gleyma á hverju það góðæri byggir sem við lifum. Það byggir fyrst og fremst á stóraukningu erlendra lána og ekki neinu öðru og á því sem vel hefur farið hér undanfarin ár eru tveir merkimiðar. Annar er EES-samningurinn og hinn er þjóðarsáttin sem hv. þm. þekkir mjög vel. Það er sorglegt að hann skuli ekki vera með þá efnahagsstefnu á tæru sem þá var lagt upp með, og hann ætti að þekkja tengsl milli vaxtar og þenslu. Það væri hægt að ræða evruna í því sambandi. Og varðandi vísindamennina og Hafrannsóknastofnun þolum við alla umræðu en við viljum að hún sé með rökum og það eru ekki rök sem hv. þm. hefur komið fram með í fiskiumræðunni. Hann kemur með fjarstæðu en á að koma með rök og þá er tekið á móti þeim rökum hér á málefnalegan hátt, bæði af mér og öðrum. Það er enginn sem ég þekki til sem tekur undir þennan málflutning. Það gerir ekki málflutning hans verri en það gerir það að verkum að hann ætti að hugleiða betur rökstuðninginn á bak við fullyrðingar sínar.