Össur Skarphéðinsson:
Herra forseti. Þrátt fyrir skjall hæstv. fjmrh. um sjálfan sig og sína ríkisstjórn þá birtir þetta fjárlagafrv. nauðsyn þess að skipta sem allra fyrst um ríkisstjórn. Það birtir þann mikla mun sem er á efnahagsstefnu Samfylkingarinnar og ríkisstjórnarinnar. Í frv. koma fram allir verstu gallar efnahagsstefnu núv. ríkisstjórnar, stórauknar skuldir einstaklinga og fyrirtækja, gríðarlegar erlendar skuldir þjóðarbúsins, lítill hagvöxtur og miklu minni en spáð er t.d. í löndum ESB.
Frumvarpið sýnir vaxandi þreytu ríkisstjórnarinnar, það sýnir ríkisstjórn sem hefur óljósa stefnu, óljós markmið, lítinn metnað og metnaðarleysið kemur ekki síst fram í menntamálum sem eru að koðna niður undir núv. ríkisstjórn. Við sjáum það á vanda framhaldsskólanna, vanda háskólanna og það er ekkert gert.
Herra forseti. Ríkisstjórnin verður sjálf að bera ábyrgð á þessu frv. en hún hefur sýnt þjóðinni fram á nauðsyn þess að skipta um ríkisstjórn.