2002-12-06 14:30:55# 128. lþ. 48.18 fundur 356. mál: #A ábyrgðir vegna lánaflokks í Norræna fjárfestingarbankanum til umhverfismála# frv. 129/2002, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 48. fundur, 128. lþ.

[14:30]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um auknar ábyrgðir vegna lánaflokks í Norræna fjárfestingarbankanum til umhverfismála í grannhéruðum Norðurlandanna.

Mál þetta hefur verið sent til umsagnar aðila sem getið er um í nál. Þetta er mikið framfaramál fyrir þá aðila sem í hlut eiga og nauðsynlegt að Norræni fjárfestingarbankinn hafi getu til að lána til umhverfismála með þeim hætti sem gert er ráð fyrir.

Nefndin leggur því til að mál þetta verði samþykkt óbreytt.