Safnalög

Þriðjudaginn 10. desember 2002, kl. 20:22:39 (2409)

2002-12-10 20:22:39# 128. lþ. 50.29 fundur 393. mál: #A safnalög# (safnaráð, verkefni höfuðsafna o.fl.) frv. 144/2002, Frsm. GunnB
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 128. lþ.

[20:22]

Frsm. menntmn. (Gunnar Birgisson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. um breyting á safnalögum, nr. 106/2001.

Með frv. eru lagðar til þrjár breytingar á safnalögum. Í fyrsta lagi er lögð til breyting á eftirlitshlutverki safnaráðs með hliðsjón af setu forstöðumanna svokallaðra höfuðsafna í ráðinu, þ.e. að safnaráð hafi ekki lengur eftirlit með söfnum í eigu ríkisins. Ástæðan er sú að forstöðumenn höfuðsafna, sem öll eru í eigu ríkisins, bera ábyrgð á starfsemi safna sinna gagnvart ráðherra í samræmi við lög sem um söfnin gilda og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996. Það er því í andstöðu við þá skipan að fela safnaráði sérstakt eftirlitshlutverk gagnvart höfuðsöfnum. Í öðru lagi er lagt til að samræmi milli verkefna og verksviða höfuðsafna verði aukið og loks er lagt til að lögfest verði lagaheimild til þess að greiða kostnað af starfsemi safnaráðs.

Nefndin leggur til að frv. verði samþykkt með eftirfarandi breytingu, þ.e. að við 3. gr. frv. og 10. gr. laganna bætist ný málsgrein, svohljóðandi:

,,Kostnaður af starfsemi safnaráðs greiðist úr safnasjóði.``

Undir nál. skrifa hv. þm. Gunnar Birgisson, formaður og frsm., Sigríður Jóhannesdóttir, Þorgerður K. Gunnarsdóttir, Sigríður Ingvarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir og Kjartan Ólafsson.

Ég legg til að frv. verði samþykkt.