Staðgreiðsla opinberra gjalda

Þriðjudaginn 10. desember 2002, kl. 22:20:22 (2425)

2002-12-10 22:20:22# 128. lþ. 50.13 fundur 372. mál: #A staðgreiðsla opinberra gjalda# (innheimta, skuldajöfnun o.fl.) frv. 135/2002, Frsm. VE
[prenta uppsett í dálka] 50. fundur, 128. lþ.

[22:20]

Frsm. efh.- og viðskn. (Vilhjálmur Egilsson):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir nál. frá efh.- og viðskn. um frv. til laga um breyting á lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, með síðari breytingum. Mál þetta var sent til umsagnar og var fjallað um það í nefndinni.

Virðulegi forseti. Nefndin gerir tillögu um smábreytingu á frv. sem kemur fram í nál. Breytingin snýst um tilvísun. Að öðru leyti leggur nefndin til að frv. verði samþykkt óbreytt.