Heilbrigðisþjónusta

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 14:23:08 (2570)

2002-12-12 14:23:08# 128. lþ. 54.3 fundur 453. mál: #A heilbrigðisþjónusta# (stofnkostnaður, stjórnir stofnana o.fl.) frv., JB (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 128. lþ.

[14:23]

Jón Bjarnason (andsvar):

Ég þakka hæstv. heilbrrh. fyrir að viðurkenna að það sem hér er lagt til er ekki hluti af þessu samkomulagi, á því ekkert erindi inn í þessi lög og er hluti af allt öðru máli en hér er verið að fjalla um. Þá er líka auðvelt fyrir hæstv. heilbrrh. að fella þetta burt úr frv. þannig að það geti orðið að lögum.

Mig minnir að hæstv. heilbrrh. hafi sagt eitthvað á þá leið að það sem hér væri verið að leggja til og ætti að flytja lagafrv. um væri til að framfylgja þessu samkomulagi. En ákvæðin sem þarna koma fram eru alls ekki hluti af þessu samkomulagi. Þarna er verið að draga inn í afgreiðsluna mikilvægar breytingar sem voru alls ekki hluti af því samkomulagi sem gert var. Það á þess vegna ekki heima inni í frv. á þeim grundvelli sem það er hér lagt fram.