Lífeyrissjóður sjómanna

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 16:53:53 (2624)

2002-12-12 16:53:53# 128. lþ. 54.8 fundur 355. mál: #A Lífeyrissjóður sjómanna# (elli- og makalífeyrir) frv. 151/2002, EKG
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 128. lþ.

[16:53]

Einar K. Guðfinnsson:

Virðulegi forseti. Ég vil láta það koma fram að ég tel að sú brtt. sem hv. þm. Pétur Blöndal, 10. þm. Reykv., hefur flutt sé mjög til bóta. Ég hef kynnt mér málið og hef m.a. aflað mér upplýsinga um það og á þeim grundvelli tel ég að það væri málinu til styrktar að brtt. verði samþykkt. Hún felur ekki í sér efnisbreytingu. Þau atriði sem hv. þm. vekur athygli á með þessari brtt. eru í raun og veru nefnd í athugasemdum með frv. en ég tel við nánari athugun að skynsamlegt sé að kveða nánar á um það í lögunum.