Lífeyrissjóður sjómanna

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 16:54:37 (2625)

2002-12-12 16:54:37# 128. lþ. 54.8 fundur 355. mál: #A Lífeyrissjóður sjómanna# (elli- og makalífeyrir) frv. 151/2002, GAK
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 128. lþ.

[16:54]

Guðjón A. Kristjánsson:

Herra forseti. Varðandi þessa brtt. hv. þm. Péturs Blöndal þá held ég að hún sé til bóta. Hún skýrir rétt fólks sem áður hefur hafið töku lífeyris og þó getið sé um það í greinargerð að þannig hafi staðið til að framkvæma þetta, þá er rétt að gera þarna skýr lagaskil og ég held að það sé ekki meira um það að segja. Þetta er til bóta.