Verkefni Umhverfisstofnunar

Fimmtudaginn 12. desember 2002, kl. 20:23:35 (2641)

2002-12-12 20:23:35# 128. lþ. 55.19 fundur 405. mál: #A verkefni Umhverfisstofnunar# (breyting ýmissa laga) frv. 164/2002, Frsm. meiri hluta MS
[prenta uppsett í dálka] 55. fundur, 128. lþ.

[20:23]

Frsm. meiri hluta umhvn. (Magnús Stefánsson):

Herra forseti. Ég mæli fyrir nál. um frv. til laga um breytingar á ýmsum lögum vegna verkefna Umhverfisstofnunar frá meiri hluta umhvn.

Í umfjöllun um málið fékk nefndin á sinn fund töluverðan hóp gesta og lauk síðan störfum með því að skila þessu nál.

Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á ýmsum lögum vegna nýrrar stofnunar, Umhverfisstofnunar, sem hefur starfsemi 1. janúar nk., sbr. lög um Umhverfisstofnun, nr. 90/2002.

Stjórnsýsla á sviði umhverfismála verður hjá Umhverfisstofnun og rannsóknarverkefni verða hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. Talin hefur verið þörf á því að einfalda stjórnsýslu á þessu sviði. Í samræmi við það er lagt til í frumvarpinu að stjórnsýsluvald verði fært frá fjölskipuðum nefndum, þ.e. Breiðafjarðarnefnd og ráðgjafarnefnd um villt dýr, til Umhverfisstofnunar, auk þess sem lagt er til að sú síðarnefnda verði lögð niður. Hins vegar er lagt til að hreindýraráð, sem lagt var niður með lögum nr. 90/2002, starfi áfram að sömu verkefnum og áður að því undanskildu að stjórnsýsla málaflokksins færist til Umhverfisstofnunar. Telur meiri hlutinn það farsæla lausn enda æskilegt að málaflokkurinn njóti góðs af þeirri staðbundnu þekkingu sem til staðar er í hreindýraráði.

Meiri hlutinn leggur til að hætt verði við að leggja niður dýraverndarráð eins og gert var ráð fyrir í frumvarpinu en það var lagt niður með lögum um Umhverfisstofnun. Leggur meiri hlutinn til að það starfi áfram en í breyttri mynd. Stjórnsýsla á sviðinu og framkvæmd laga um dýravernd verði hjá Umhverfisstofnun en ráðið sinni ráðgjafarhlutverki fyrir stofnunina og umhverfisráðherra. Leggur meiri hlutinn til að sömu aðilar tilnefni menn í ráðið en ráðsmönnum verði fækkað úr fimm í fjóra þannig að umhverfisráðherra skipi ekki lengur mann án tilnefningar í ráðið. Er það gert að tillögu fulltrúa umhverfisráðuneytisins sem telja ekki þörf á því.

Meiri hlutinn leggur einnig til að Skotveiðifélag Íslands tilnefni ekki fulltrúa í hreindýraráð. Við umfjöllun málsins var bent á að verkefni hreindýraráðs væru þess eðlis að ekki væru efni til að félagið tæki þátt í eða hefði áhrif á umfjöllun um þau. Fellst meiri hlutinn á þau sjónarmið.

Varðandi hreindýramál vil ég taka fram að samkvæmt frv. er gert ráð fyrir að Náttúrustofa Austurlands annist vöktun og rannsóknir á hreindýrastofninum samkvæmt samningi við Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands. Samkvæmt breytingum á lögum um náttúrustofur er gert ráð fyrir að verkefni sem náttúrustofur annist séu gerð samkvæmt samningi við viðkomandi aðila og er gert ráð fyrir að svo verði með hreindýramálin en ekki er gert ráð fyrir að nein breyting verði á þeim verkefnum sem náttúrustofan hefur sinnt að þessu leyti, þannig að ég geri ráð fyrir því að að þau mál verði í sama horfi eftir sem áður.

Aðrar breytingar sem lagðar eru til í brtt. nefndarinnar eru leiðréttingar.

Meiri hlutinn leggur til og mælir með að frv. verði samþykkt með breytingum sem gert er tillaga um í sérstöku þingskjali.

Undir álit meiri hlutans skrifa eftirtaldir hv. þingmenn: Magnús Stefánsson, Ásta Möller, Ísólfur Gylfi Pálmason og Kristján Pálsson. Jóhann Ársælsson og Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifa undir álitið með fyrirvara.