Úrvinnslugjald

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 10:40:21 (2729)

2002-12-13 10:40:21# 128. lþ. 57.3 fundur 337. mál: #A úrvinnslugjald# frv. 162/2002, ÞSveinb (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 128. lþ.

[10:40]

Þórunn Sveinbjarnardóttir (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Hér er tekið til afgreiðslu frv. hæstv. umhvrh. um úrvinnslugjald. Samfylkingin mun ekki greiða þessu máli atkvæði sitt. Hins vegar teljum við hér vera stigið skref í rétta átt. Hugmyndafræðin að baki frv. er hin rétta en útfærslan mætti vera með allt öðrum hætti. Við munum styðja brtt. hv. þm. Kolbrúnar Halldórsdóttur en sitja hjá við aðra afgreiðslu málsins.