Jólakveðjur

Föstudaginn 13. desember 2002, kl. 15:50:17 (2807)

2002-12-13 15:50:17# 128. lþ. 60.95 fundur 348#B jólakveðjur#, ÖJ
[prenta uppsett í dálka] 60. fundur, 128. lþ.

[15:50]

Ögmundur Jónasson:

Herra forseti. Ég vil fyrir hönd okkar alþingismanna þakka hæstv. forseta fyrir gott samstarf á þessu haustþingi. Ég þakka forseta fyrir hlý orð í garð okkar þingmanna og vil fyrir okkar hönd óska forseta og fjölskyldu hans gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Þá vil ég sérstaklega þakka starfsfólki Alþingis fyrir dugnað og þolinmæði í okkar garð og óska því gleðilegra jóla. Ég bið hv. þingmenn að taka undir góðar óskir til starfsfólks Alþingis og hæstv. forseta og fjölskyldu hans með því að rísa úr sætum. --- [Þingmenn risu úr sætum.]