Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 103. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 103  —  103. mál.




Fyrirspurn



til samgönguráðherra um einbreiðar brýr.

Frá Kristjáni Pálssyni.


     1.      Hve margar einbreiðar brýr eru á þjóðvegi eitt eftir kjördæmum samkvæmt nýrri kjördæmaskipan?
     2.      Hvaða áform eru uppi um fækkun einbreiðra brúa á þjóðvegi eitt eftir kjördæmum samkvæmt nýrri kjördæmaskipan og hver er áætlaður kostnaður?


Skriflegt svar óskast.