Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 271. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 289  —  271. mál.




Fyrirspurn



til dómsmálaráðherra um skýrslutöku af börnum í Barnahúsi og dómhúsum.

Frá Rannveigu Guðmundsdóttur.



     1.      Hve mörg börn hafa komið í skýrslutöku frá því að Barnahúsið var opnað?
     2.      Hversu oft hafa verið teknar skýrslur af börnum í Barnahúsi annars vegar og í dómhúsum hins vegar frá því að breyting þar að lútandi var gerð á lögum um meðferð opinberra mála? Svar óskast sundurliðað eftir árum og aldri barna.


Skriflegt svar óskast.