Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 293. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 315  —  293. mál.




Fyrirspurn



til umhverfisráðherra um stuðning við kvikmyndagerð.

Frá Kolbrúnu Halldórsdóttur.



     1.      Hversu margar umsóknir um fjárstuðning við kvikmyndagerð hafa borist til umhverfisráðuneytisins á kjörtímabilinu, hverjir hafa átt þar hlut að máli og hvernig afgreiðslu hafa þessar umsóknir hlotið?
     2.      Fjallar kvikmynd sú sem ráðherra hefur ákveðið að styrkja, „Ísland í öðru ljósi“, á einhvern hátt um mannvirkjagerð á hálendi Íslands eða hvert er megininntak myndarinnar?