Aðrar útgáfur af skjalinu: PDF - Word Perfect. Ferill 539. máls.
128. löggjafarþing 2002–2003.
Þskj. 1089  —  539. mál.




Nefndarálit



um frv. til l. um breyt. á l. um Siglingastofnun Íslands, nr. 6/1996, með síðari breytingum.

Frá samgöngunefnd.



    Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Ragnhildi Hjaltadóttur frá samgönguráðuneytinu.
    Nefndinni bárust umsagnir um málið frá Siglingastofnun Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands, Vélstjórafélagi Íslands, Landhelgisgæslu Íslands, Félagi íslenskra skipstjórnarmanna, Sambandi íslenskra kaupskipaútgerða, Stýrimannaskólanum í Reykjavík, Sjómannasambandi Íslands, Hafnasambandi sveitarfélaga, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Vélskóla Íslands.
    Markmið frumvarpsins er tvíþætt. Annars vegar er í frumvarpinu gert ráð fyrir að Siglingastofnun Íslands verði falið að annast framkvæmd vaktstöðvar siglinga, sbr. frumvarp til laga um vaktstöð siglinga sem liggur fyrir þinginu. Hins vegar veitir frumvarpið íslenskum yfirvöldum lagaheimild til að gerast aðilar að væntanlegri Siglingaöryggisstofnun Evrópu og innleiða reglugerðir Evrópusambandsins sem því tengjast.
    Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.
    Magnús Stefánsson, Kristján L. Möller, Lúðvík Bergvinsson og Jón Bjarnason voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.

Alþingi, 4. mars 2003.



Guðmundur Hallvarðsson,


form., frsm.


Hjálmar Árnason.


Arnbjörg Sveinsdóttir.



Þorgerður K. Gunnarsdóttir.


Sigríður Ingvarsdóttir.