Ávarp aldursforseta

Mánudaginn 26. maí 2003, kl. 14:22:17 (0)

2003-05-26 14:22:17# 129. lþ. -1.97 fundur 41#B ávarp aldursforseta#, Aldursforseti HÁs
[prenta uppsett í dálka] -1. fundur, 129. lþ.

[14:22]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Ég býð alla hv. alþingismenn sem kjörnir voru í alþingiskosningunum 10. maí sl. velkomna til starfa á hv. Alþingi. Sérstaklega vil ég bjóða velkomna 18 nýkjörna alþingismenn sem ekki áttu fast sæti þegar Alþingi lauk störfum í marsmánuði sl. Ég vil láta í ljós þá von að störf þessa nýkjörna þings verði landi og þjóð til heilla.

Fyrir hönd okkar alþingismanna heilsa ég starfsfólki Alþingis og vænti þess að við megum eiga góða samvinnu við það eins og endranær.