Jóhann Ársælsson:
Hæstv. forseti. Ég verð að lýsa yfir miklum vonbrigðum mínum með þátttöku stjórnarliða í þessari umræðu. Það var óskað eftir því í dag, mjög skýrt og ákveðið, að menn bæru fram rök fyrir þeirri afstöðu sem hefur komið fram í áliti meiri hluta kjörbréfanefndar sem formaður kjörbréfanefndar hefur mælt fyrir.
Hv. formaður kjörbréfanefndar svaraði rökum okkar frá því í umræðunni í dag og ég verð að segja að mér fannst ekkert koma fram í málflutningi hans sem hrakið gæti það sem við höfum lagt fram í umræðunni.
Hv. þm. sagði að skýrslur lægju fyrir og að við værum að biðja um skýrslur sem þegar lægju fyrir. Það sem við erum að fara fram á er að það verði kannað nákvæmlega hvort brögð hafi verið að því að mismunandi hafi verið farið með atkvæði milli kjördæma. Við höfum bent á dæmi þess. Kjörbréfanefndin hefur sjálf lagt til að farið verði öðruvísi með atkvæði í tveimur kjördæmum en gert var í öðrum kjördæmum hvað varðar V-atkvæðin. Þetta er það sem við sitjum uppi með. Við förum fram á að vita nákvæmlega hvernig í þessum málum liggur þannig að það sé hægt að sjá hvort mismunandi meðferð kjörgagna geti hafa haft áhrif á þá niðurstöðu sem hér á að staðfesta. Fyrir því að ekki megi gera rannsókn af því tagi hafa að mínu viti engin frambærileg rök komið. Það er gert ráð fyrir því að slík rannsókn geti farið fram. Hvenær ætti slík rannsókn að fara fram ef ekki þegar svona staða kemur upp?
Mér finnst þetta því miður enn eitt dæmið um að á háttvirtu Alþingi stunda menn það að keyra yfir minni hlutann. Það er ákveðið fyrir fram hvernig stjórnarliðið á að rétta upp hendurnar. Stjórnarliðið fellst á allt saman. Hinir ungu nýju þingmenn eru mættir á staðinn en hafa ekki látið svo lítið að taka þátt í þessari umræðu til að segja frá því hvort þeir ætli að bætast í handauppréttingavélahópinn eða hafa sjálfstæðar skoðanir og toga meiri hlutann út úr þessu, ég vil segja, niðurlægjandi hlutverki sem þingmönnum meiri hlutans er hvað eftir annað falið hér á hv. Alþingi, að taka einhverri niðurstöðu sem ríkisstjórnin eða meiri hlutinn hefur ákveðið.
Mér finnst þetta dapurleg niðurstaða. Ég tel ekkert vanta upp á að hægt sé að fara yfir þessi álitamál og skoða hvort þau geti haft áhrif. Það er ljóst að það er hægt að taka tillit til þeirra niðurstaðna sem kæmu út úr slíkri rannsókn ef menn vildu. Ég harma það að menn skulu ekki hafa viljað hlusta á þau rök sem hér hafa komið fram. Mér finnst það óvirðing við lýðræðið í landinu að svo skuli vera.