Frsm. minni hluta kjörbn. (Lúðvík Bergvinsson) (andsvar):
Virðulegi forseti. Ég hef gert mér grein fyrir því í allan dag að meiri hlutinn er í miklum vanda. Rök fyrir afstöðu þeirra liggja ekki fyrir. En ég held að málstaðnum sé enginn greiði gerður með umræðu eða orðræðu af þessum toga. Við erum einfaldlega að óska eftir því að farið verði ofan í saumana á því hvernig framkvæmd kosninganna var. Við höfum ekki gefið okkur út fyrir það að þó að kæra liggi fyrir, þá séum við tilbúin að kveða upp úrskurð. Við teljum bara að næg rök séu fram komin til þess að rannsókn fari fram. Það er það sem við erum að biðja um. Ég er þannig gerður að ég vil að ákveðnar forsendur og upplýsingar liggi fyrir áður en við tökum afstöðu í jafnstóru máli. En það eru kannski aðrir hv. þingmenn eða kannski reyndar bara einn, sem hefur þurft að verja mjög vondan málstað og er þá vægt til orða tekið, sem hefur haldið því fram að þess þurfi ekki. Þetta er náttúrlega í sjálfu sér mjög merkileg umræða og innlegg til allra úrskurðaraðila í landinu. En ég ætla að vona að þeir fylgi ekki fordæmi hv. þm. Einars K. Guðfinnssonar þegar þeir kveða upp sinn úrskurð.