Rannsókn kjörbréfa

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 13:44:38 (48)

2003-05-27 13:44:38# 129. lþ. 1.94 fundur 1#B rannsókn kjörbréfa#, GAK (um atkvæðagreiðslu)
[prenta uppsett í dálka] 1. fundur, 129. lþ.

[13:44]

Guðjón A. Kristjánsson (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Með vísan til málflutnings okkar og málatilbúnaðar varðandi afgreiðslu kjörbréfa hafa þingmenn Frjálslynda flokksins ákveðið að sitja hjá við afgreiðslu málsins og við greiðum því ekki atkvæði.