Kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 13:57:02 (53)

2003-05-27 13:57:02# 129. lþ. 1.1 fundur 2#B kosning forseta skv. 1. mgr. 3. gr. þingskapa#, Aldursforseti HÁs
[prenta uppsett í dálka] 1. fundur, 129. lþ.

[13:57]

Aldursforseti (Halldór Ásgrímsson):

Samkvæmt þessu er hv. 2. þm. Norðausturkjördæmis, Halldór Blöndal, rétt kjörinn forseti Alþingis.

Um leið og ég þakka þingmönnum umburðarlyndi í minn garð þennan stutta tíma vil ég óska hæstv. forseta til hamingju með kosninguna og óska honum allra heilla í starfi sem ég veit að verður, enda vanur maður og bið hann að taka við fundarstjórn.