Tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 16:03:42 (61)

2003-05-27 16:03:42# 129. lþ. 2.95 fundur 70#B tilkynning um kosningu embættismanna alþjóðanefnda#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 2. fundur, 129. lþ.

[16:03]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hafa eftirfarandi tilkynningar um kjör embættismanna eftirtalinna alþjóðanefnda:

Íslandsdeild Alþjóðaþingmannasambandsins: Einar K. Guðfinnsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.

Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins: Sólveig Pétursdóttir formaður og Kristinn H. Gunnarsson varaformaður.

Íslandsdeild NATO-þingsins: Árni R. Árnason formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.

Íslandsdeild þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu: Pétur H. Blöndal formaður og Dagný Jónsdóttir varaformaður.

Íslandsdeild þings Vestur-Evrópusambandsins: Bjarni Benediktsson formaður og Guðjón Hjörleifsson varaformaður.

Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA: Gunnar Birgisson formaður og Birkir J. Jónsson varaformaður.

Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins: Birgir Ármannsson formaður og Hjálmar Árnason varaformaður.

Íslandsdeild Norðurlandaráðs: Jónína Bjartmarz formaður og Drífa Hjartardóttir varaformaður.

Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál: Sigríður A. Þórðardóttir formaður og Magnús Stefánsson varaformaður.