Þingfrestun

Þriðjudaginn 27. maí 2003, kl. 21:59:55 (83)

2003-05-27 21:59:55# 129. lþ. 4.95 fundur 69#B þingfrestun#, forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 4. fundur, 129. lþ.

[21:59]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

,,Forseti Íslands gjörir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 129. löggjafarþings, frá 27. maí 2003 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til septemberloka.

Gjört í Reykjavík, 26. maí 2003.

Ólafur Ragnar Grímsson.

-------------------

Davíð Oddsson.

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.``

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég hér með yfir því að fundum Alþingis, 129. löggjafarþings, er frestað.

Ég óska hv. alþingismönnum og starfsmönnum þingsins, svo og landsmönnum öllum, allra heilla.