Framhaldsfundir Alþingis

Miðvikudaginn 28. janúar 2004, kl. 13:32:05 (3511)

2004-01-28 13:32:05# 130. lþ. 52.93 fundur 256#B framhaldsfundir Alþingis#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 130. lþ.

[13:32]

Forseti (Halldór Blöndal):

Ég þakka hæstv. forsrh. góðar óskir í garð okkar alþingismanna og starfsmanna Alþingis. Ég óska alþingismönnum og starfsmönnum Alþingis gleðilegs árs. Jafnframt sendi ég landsmönnum öllum mínar bestu nýársóskir.

Ég vona að hlé það sem verið hefur á reglulegum fundum Alþingis hafi nýst alþingismönnum vel til fundahalda í kjördæmum sínum og til annarra samskipta við kjósendur. Ég á von á því að það skili sér í störfum Alþingis.