Mannabreytingar í nefndum

Miðvikudaginn 28. janúar 2004, kl. 13:40:15 (3514)

2004-01-28 13:40:15# 130. lþ. 52.96 fundur 259#B mannabreytingar í nefndum#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 52. fundur, 130. lþ.

[13:40]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá formanni þingflokks sjálfstæðismanna um mannabreytingar í nefndum:

,,Þingflokkur sjálfstæðismanna hefur ákveðið eftirfarandi breytingar á skipan þingmanna Sjálfstæðisflokksins í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis, sbr. 16. gr. þingskapa:

Arnbjörg Sveinsdóttir tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í allshn. og samgn., svo og sæti varamanns í Íslandsdeild Norðurlandaráðs og Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins.

Guðmundur Hallvarðsson tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í iðnn.

Sólveig Pétursdóttir tekur sæti Þorgerðar K. Gunnarsdóttur í kjörbn.

Arnbjörg Sveinsdóttir kemur í stað Guðmundar Hallvarðssonar í fjárln.

Þetta tilkynnist yður hér með.

Einar K. Guðfinnsson,

formaður þingflokks Sjálfstfl.``

Þetta bréf er dagsett 28. janúar 2004.