Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Því er til að svara varðandi þessa fyrirspurn að töluvert vandamál hefur skapast vegna skipa sem eru í óreiðu í höfnum og fjörum og þetta er vandamál sem verður að taka á. Fyrir liggja tvær skýrslur opinberra aðila þar sem vandamálinu er lýst og gerðar eru tillögur um úrbætur.
Vegna þessarar forsögu er lagt til í frv. til laga um verndun hafs og stranda, sem er til umfjöllunar núna hjá umhvn. Alþingis, að umhvrh. skuli í samvinnu við Umhverfisstofnun, samgrh., Hafnasamband sveitarfélaga og heilbrigðisnefndir gera áætlun um hreinsun stranda og hafnarsvæða í þessu tilviki og um kostnað er af því leiðir. Skal áætlunin liggja fyrir eigi síðar en 1. júlí 2005 og koma til framkvæmda hálfu ári síðar og skal hreinsuninni lokið fyrir árslok 2008. Þannig gæfust nokkur ár til að taka á þessu máli. Þetta er það sem lagt hefur verið til að verði gert og ég vona að þetta frv. verði að lögum á yfirstandandi þingi og að í framhaldinu verði tekið á málinu. Ég verð því að segja að mér finnst fulldjúpt í árinni tekið að segja að umhvrn. hafi ekkert gert, það hafa verið gerðar skýrslur og það liggur fyrir stefnumótun í frv. sem er til meðhöndlunar á Alþingi og ég vona að það ákvæði nái fram að ganga.
Þetta er hins vegar nokkuð flókið mál, það er mjög dýrt að farga þessum ónýtu og úreltu skipum og fjölmargir aðilar hafa því miður eins og á svo mörgum öðrum sviðum verið óábyrgir og ekki komið skipum sínum í förgun eftir að þau eru orðin ónýt eða ónothæf. Sumir hafa farið í gjaldþrot o.s.frv. og hafa ekki burði til þess og mér skilst að sum skip hafi hreinlega verið skilin eftir í höfnum og menn bara labbað í burtu. Þetta er auðvitað óábyrg framkoma má segja. Þetta er svipað og ef menn mundu bara skilja bílana sína eftir hvar sem er og ekki koma þeim til förgunar. Þá er kallað á ríkið og það beðið um aðstoð og sjálfsagt þarf að aðstoða í þessu tilviki, þetta er fortíðarvandi. Þetta tengist að einhverju leyti svarinu við fyrirspurninni sem kom áðan frá hv. þm. Rannveigu Guðmundsdóttur og laut að gömlum búvélum. En ég held að málið sé í ágætisfarvegi og með samþykkt frv. sem liggur fyrir um verndun hafs og stranda er kominn farvegur til að leysa málið.