Grétar Mar Jónsson:
Hæstv. þingforseti. Ég get tekið undir það sem hv. þm. Einar Kristinn Guðfinnsson var að tala um í þessu máli. Það er ekkert að því að sökkva þeim skipum sem eru orðin ónýt þegar búið er að taka úr þeim mengandi efni eins og olíur, bæði af vélum og tönkum. Þar fyrir utan laðast að þessu fiskur þegar þetta er komið í hafið og búið að sökkva þessu. Þetta verða ágætir fiskiblettir.