Umhverfisráðherra (Siv Friðleifsdóttir):
Virðulegur forseti. Eins og hér kemur fram eru allir sammála um að þetta er mikið vandamál. Það er bara spurning hvernig eigi að taka á því og hvað við eigum að borga mikið fyrir það. Það hefur komið fram að sumum finnst að það eigi að draga þessi skip á haf út, hreinsa þau fyrst reyndar sem auðvitað væri alger krafa og sökkva þeim síðan, en um þá leið hefur ekki verið samstaða. Það hefur t.d. ekki verið stefna okkar í umhvrn. að vilja gera það. Við höfum mjög sterka og góða ímynd hér gagnvart umhverfi hafsins, að verja hreinleika hafsins. Ég tel a.m.k. ekki að það mundi styrkja þá ímynd að draga þessi skip á haf út og sökkva þeim í skipakirkjugarði.
Það hefur ekki verið samstaða um þá leið og ef ég man rétt var þetta tekið út úr frv. á sínum tíma á þinginu. Sú leið sem við viljum fara kemur fram í fyrra svari mínu um að þingið samþykki að standa svona að þessu, að ákveðnir aðilar geri áætlun um lausnir í þessu. Sú áætlun er tímasett og framkvæmdum á að vera lokið fyrir árslok 2008. Þá er þingið búið að samþykkja þessa stefnumótun í lögum og eftirleikurinn miklu auðveldari, að fá fjármagn til að gera þetta. Það er alveg rétt sem hér hefur komið fram að aðilar hafa gefið sig fram sem eru tilbúnir í þetta verkefni. Það kostar bara geysilega mikla peninga. Og það er þá eðlilegt að löggjafinn tali skýrt í þessu máli eins og við erum að leggja til í frv. og samþykki að taka á því. Þá er væntanlega hægt að fjármagna það í framhaldinu, væntanlega á fjárlögum þó að of snemmt sé að kveða upp úr um það. (Gripið fram í.)