Sigurður Kári Kristjánsson:
Virðulegi forseti. Sú umræða sem hér hefur farið fram og hefur farið fram m.a. í fjölmiðlum hefur að mínu mati verið algjörlega ótrúleg vegna þess að allt tal um vanhæfi hv. þm. Péturs Blöndals í þeim málum sem við erum að ræða og meðferð fyrir efh.- og viðskn. er náttúrlega fullkomlega út úr kortinu að mínu mati. Reglur um vanhæfi eru algjörlega skýrar og ef það er einhver þingmaður hér inni sem ætti að vita það er það hv. þm. Jóhanna Sigurðardóttir, sem hefur komið að slíkum vanhæfismálum áður.
Ég tel að hv. þm. og málshefjandi Ögmundur Jónasson ætti að beina þessum athugasemdum fyrst og fremst til þingmanna Samfylkingarinnar, kannski helst til hv. þm. Lúðvíks Bergvinssonar, sem hefur farið mest fram í þessu máli. Mér finnst sá málflutningur sem hann hefur haldið fram og þingmenn Samfylkingarinnar, eins og ég sagði, vera með algjörum ólíkindum og maður veit ekki til hvers hann á að leiða. Ef þær reglur og þau sjónarmið sem hv. þm. Lúðvík Bergvinsson berst fyrir tækju gildi mundum við væntanlega standa uppi með það að Alþingi yrði óstarfhæft. Ég get ekki séð, miðað við þann málflutning sem hv. þm. Lúðvík Bergvinsson hefur talað hér fyrir, að hv. þm. Helgi Hjörvar gæti talað máli öryrkja. Það sama má segja um málflutning hv. málshefjanda um málefni opinberra starfsmanna eða hv. þm. Kristjáns Möllers um málefni Siglfirðinga og svo mætti lengi telja.
Þetta tal allt um meint vanhæfi hv. þm. Péturs Blöndals er því að mínu mati fjarstæða og ef þessi málflutningur og þetta tal næði fram að ganga og þær hugmyndir sem þingmenn Samfylkingarinnar hafa haft í frammi í málinu sætum við uppi með Alþingi sem löggjafarsamkomu þar sem einungis munkar sætu í þingstólum.