Steingrímur J. Sigfússon (andsvar):
Herra forseti. Ég tek út af fyrir sig undir það með hv. þingmanni að eitt af því sem þarna er eðlilegt að athuga er skipan eftirlitsnefndarinnar, hvernig í hana er skipað. Það skiptir vissulega máli og þau sjónarmið geta verið uppi að það sé betra að það séu alveg utanaðkomandi aðilar heldur en einhverjir félagsmenn úr Félagi fasteignasala sem þarna gætu komið til sem þessir tveir af þremur fulltrúum í nefndinni.
Hitt er svo auðvitað álitamál hvort viðhafa eigi þetta fyrirkomulag og hversu víðtækt valdsvið eigi að fela þeirri nefnd. Þegar maður hugsar þetta er þarna verið að setja á fót nefnd sem hefur mjög afgerandi vald, ekki bara til að kanna gögn og sækja sér upplýsingar heldur hefur hún áminningar- og agavald og getur svipt menn löggildingu. Hún getur að eigin frumkvæði leitað eftir atbeina lögreglu til að loka starfsstöð þannig að þarna er um mjög sterka stöðu nefndarinnar að ræða og minnir á, umdeildar að vísu, heimildir samkeppnisyfirvalda og skattsins og fleiri aðila til að fara inn í starfandi fyrirtæki og sækja sér upplýsingar, beita síðan viðurlögum og refsingum. Nefndinni er því falið mjög mikilvægt hlutverk og það hlýtur að þurfa að skoða hvort tveggja vandlega, bæði skipan hennar sem og hversu víðtækt valdsvið hún á að hafa ef menn sem sagt ætla að koma því á sem þarna er lagt til á annað borð. Annar möguleiki væri t.d. venjubundið opinbert eftirlit sem er algjörlega óháð utanaðkomandi gagnvart þeim félagsskap sem í hlut á.