Hugverkaréttindi á sviði iðnaðar

Fimmtudaginn 29. janúar 2004, kl. 16:24:54 (3671)

2004-01-29 16:24:54# 130. lþ. 53.8 fundur 442. mál: #A hugverkaréttindi á sviði iðnaðar# (ELS-tíðindi) frv., ÁRJ
[prenta uppsett í dálka] 53. fundur, 130. lþ.

[16:24]

Ásta R. Jóhannesdóttir:

Herra forseti. Bara nokkur orð um frv. til laga sem hér kemur fram í stuttum bandormi. Ég get ekki annað en lýst stuðningi við málið. Þar sem ég á sæti í iðnn. vildi ég lýsa því yfir að ég geti ekki séð annað en að í þessu máli sé fólgin bæði hagkvæmni og sparnaður og ekki nema til hagræðis fyrir þá sem þurfa á þeim upplýsingum að halda sem eru í ELS-tíðindunum, og menn ættu að fá tíðindin fyrr. Þeir sem vilja fá þetta í prentuðu formi geta fengi útprentun eins og hæstv. ráðherra benti á. Ég get því ekki séð annað en að verið sé að fylgja tíðarandanum og taka tæknina til notkunar á sem hagkvæmastan hátt. Ég lýsi því stuðningi við þetta ágæta mál.