Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir):
Hæstv. forseti. Það er vandasamt að skipa nefnd þannig að allir séu sáttir, ég geri mér fulla grein fyrir því. Hins vegar fannst mér að mér tækist nokkuð vel til í sambandi við nefndarskipanina og er ákaflega sátt við hvernig þessu lyktaði af hálfu viðskrn.
Hv. þm. talar um að hér sé allt með gamla laginu, mér finnst það nú alls ekki vera vegna þess að hér eru þekktir einstaklingar sem hafa getið sér gott orð, t.d. í viðskiptalífinu og í Háskóla Íslands. Formaður er Gylfi Magnússon dósent og þykir mér fengur að því að hafa fengið hann til þessara starfa.
Ég veit ekki hvernig hv. þm. hefði viljað hafa þetta með nýja laginu, ég hefði nú talið að það væri frekar af gamla laginu að kalla til fulltrúa frá öllum flokkum sem eiga fulltrúa á Alþingi. Það hefði vissulega getað komið til greina en niðurstaðan varð sú að gera það ekki.
Hvað varðar aðila vinnumarkaðarins getur verið að það hefði mátt hugsa sér þetta þannig að fulltrúar hefðu verið tilnefndir frá ýmsum samtökum eins og ASÍ, Verslunarráði, Samtökum atvinnulífsins og þar fram eftir götunum. En sú leið var ekki farin heldur var fólkið valið vegna þeirra kosta sem það hefur yfir að búa. Ég vænti mikils af nefndarstarfinu og tel að þó svo að stjórnarandstaðan eigi ekki fulltrúa í nefndinni sé ekki ólíklegt að það geti náðst samstaða um einhvers konar niðurstöðu þegar þar að kemur. Það á eftir að koma í ljós hver niðurstaða nefndarinnar verður, það hefur að sjálfsögðu ekki verið ákveðið neitt fyrir fram um hana, heldur verður forvitnilegt að sjá hvernig nefndin telur rétt að bregðast við þeirri samþjöppun sem orðið hefur í viðskiptalífinu.
En aðalatriðið er að viðskiptalífið njóti trausts.