Breytingar á eignarhaldi í sjávarútvegi

Mánudaginn 02. febrúar 2004, kl. 16:25:34 (3718)

2004-02-02 16:25:34# 130. lþ. 54.93 fundur 282#B breytingar á eignarhaldi í sjávarútvegi# (um fundarstjórn), ÖS
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 130. lþ.

[16:25]

Össur Skarphéðinsson:

Frú forseti. Það velkist enginn í vafa um það hér í þessum sölum að hv. þm. hefur sterkar skoðanir á því máli sem hér er um að ræða. En nú hefur hann upplýst það að hann er í reynd eini þingmaður Framsfl. sem hefur slíkar skoðanir.