Skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða

Mánudaginn 02. febrúar 2004, kl. 18:01:14 (3744)

2004-02-02 18:01:14# 130. lþ. 54.7 fundur 480. mál: #A skyldutrygging lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða# (EES-reglur, fjárfestingar o.fl.) frv., fjmrh.
[prenta uppsett í dálka] 54. fundur, 130. lþ.

[18:01]

Fjármálaráðherra (Geir H. Haarde):

Herra forseti. Ég held ekki að hægt sé að lesa það út úr þessari 4. gr. frv. sem hv. þm. sagði. En ég geri nú ráð fyrir að almenn túlkun á lögunum í heild, eins og þau eru núna og ekki er verið að breyta með þessu, sé sú að það falli ekki undir verksvið lífeyrissjóðanna að stofna banka.