AtG fyrir KolH

Fimmtudaginn 05. febrúar 2004, kl. 10:31:51 (3880)

2004-02-05 10:31:51# 130. lþ. 57.96 fundur 297#B AtG fyrir KolH#, Forseti JBjart
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 130. lþ.

[10:31]

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá 8. þm. Reykv. n., Kolbrúnu Halldórsdóttur, dags. 4. febrúar sl.:

,,Þar sem ég get ekki sótt þingfundi næstu vikur af persónulegum ástæðum óska ég eftir því með vísan til 2. mgr. 53. gr. þingskapa að varamaður minn á lista Vinstri hreyfingarinnar -- græns framboðs í Reykv. n., Atli Gíslason lögmaður, taki sæti mitt á Alþingi á meðan.``

Kjörbréf Atla Gíslasonar hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hann hefur ekki áður tekið sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.