Mannabreytingar í nefndum

Fimmtudaginn 05. febrúar 2004, kl. 10:32:58 (3882)

2004-02-05 10:32:58# 130. lþ. 57.92 fundur 293#B mannabreytingar í nefndum#, Forseti JBjart
[prenta uppsett í dálka] 57. fundur, 130. lþ.

[10:32]

Forseti (Jónína Bjartmarz):

Borist hefur svohljóðandi bréf frá Margréti Frímannsdóttur, formanni þingflokks Samf., dags. 4. febrúar sl.:

,,Þingflokkur Samfylkingarinnar hefur ákveðið eftirfarandi breytingar á skipan þingmanna flokksins í fastanefndir og alþjóðanefndir Alþingis, sbr. 16. gr. þingskapa:

Bryndís Hlöðversdóttir tekur sæti Katrínar Júlíusdóttur í allsherjarnefnd og sæti aðalmanns í Íslandsdeild þingmannanefndar EFTA í stað Össurar Skarphéðinssonar.

Katrín Júlíusdóttir tekur sæti Margrétar Frímannsdóttur í félagsmálanefnd.

Össur Skarphéðinsson verður aðalmaður í Íslandsdeild Evrópuráðsþingsins í stað Margrétar Frímannsdóttur sem verður varamaður þar.``