Mannabreytingar í nefndum

Fimmtudaginn 05. febrúar 2004, kl. 20:51:08 (3907)

2004-02-05 20:51:08# 130. lþ. 58.92 fundur 299#B mannabreytingar í nefndum#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur, 130. lþ.

[20:51]

Forseti (Halldór Blöndal):

Borist hefur svohljóðandi bréf, dags. 5. febrúar, frá Einari K. Guðfinnssyni, formanni þingflokks Sjálfstfl.:

,,Guðjón Hjörleifsson tekur sæti Árna R. Árnasonar í sjávarútvegsnefnd, og Árni R. Árnason, og nú sem stendur varamaður hans, Kjartan Ólafsson, tekur sæti Guðjóns Hjörleifssonar í menntamálanefnd og sæti Bjarna Benediktssonar í iðnaðarnefnd.``