Fjármálafyrirtæki

Fimmtudaginn 05. febrúar 2004, kl. 22:14:12 (3920)

2004-02-05 22:14:12# 130. lþ. 58.1 fundur 550. mál: #A fjármálafyrirtæki# (stofnfjárhlutur í sparisjóði, stjórn sjálfseignarstofnunar o.fl.) frv. 4/2004, viðskrh. (andsvar)
[prenta uppsett í dálka] 58. fundur, 130. lþ.

[22:14]

Viðskiptaráðherra (Valgerður Sverrisdóttir) (andsvar):

Hæstv. forseti. Þarna hefur verið um einhvern misskilning að ræða af minni hálfu og biðst ég afsökunar á því. Ég vil hins vegar segja að mér hafa ekki borist þau skilaboð frá Sambandi sparisjóða að þeir vilji að það ákvæði í lögum, að heimilt sé að breyta sparisjóðum í hlutafélög, verði numið úr gildi. Það er ég að heyra í fyrsta skipti, ef það er í raun vilji Sambands sparisjóða.