Lúðvík Bergvinsson:
Virðulegi forseti. Að því leytinu til hefur verið ánægjulegt að hlýða á þessa umræðu að mikill einhugur virðist vera í þinginu um að efla þessar rannsóknir og mikill pólitískur vilji fyrir því að þær fari fram þannig að tryggt verði að hægt verði að taka ákvarðanir sem byggi á sem mestri þekkingu. Það virðist því enginn efi í huga nokkurs þess sem tekið hefur þátt í umræðunni að mikilvægt sé að tryggja þessar rannsóknir. Því ber að sjálfsögðu að fagna.
En af því sem hér hefur komið fram er kannski vert að taka undir það sem hv. þm. Kristinn H. Gunnarsson nefndi um rannsóknir á þessu sviði, þ.e. að við víkkum þær út og treystum öðrum til þess að koma að þeim því mikilvægt er að fleiri taki þátt í þeim. Það tryggir fleiri niðurstöður og meiri og merkari umræðu um málið.
Á sama hátt verða menn einnig að ræða auknar veiðarfærarannsóknir. Það er alveg augljóst og hefur verið nú um langt skeið að menn hafa haft miklar efasemdir um þær afleiðingar sem notkun flottrollsins hefur haft á veiðar á uppsjávarfiskum þannig að það er eitt af því sem við verðum að sjálfsögðu að skoða og fara vandlega yfir.
En það er þó ein spurning sem ég held að hæstv. sjútvrh. verði að svara og það er tilefni þessarar umræðu, og hæstv. ráðherra gerir þinginu kannski grein fyrir því í kjölfar þeirrar umræðu sem hér hefur farið fram, hversu lengi er ætlunin að halda því skipi úti sem nú er að fara til rannsókna því það skiptir máli og jafnvel að það verði sem lengst svo að niðurstöður verði sem bestar?