Fyrirspyrjandi (Björgvin G. Sigurðsson):
Ágæti forseti. Ég beini fyrirspurn til hæstv. menntmrh. um endurskoðun á framfærslugrunni námslána. Þar beini ég þeim fyrirspurnum til hennar hvort hafinn sé undirbúningur að því að endurskoða framfærslugrunninn og ef svo er, hvenær er áætlað að tilbúinn verði nýr framfærslugrunnur sem viðmið útreikninga á þörf nemenda fyrir námslán.
Námslán til nemenda á háskólastigi á Íslandi byggjast á framfærslugrunni sem gerður var árið 1995 og hefur verið framreiknaður árlega síðan þá. Sá grunnur er úreltur og úr takt við raunveruleikann. Í forsendum hans er t.d. ekki miðað við tölvu- og fjarskiptanotkun námsmanna, uppihald barna þeirra á leikskólum og svo mætti lengi telja.
Í lögum um Lánasjóð íslenskra námsmanna segir að sjóðnum beri að afla gagna um grunnframfærslu og þörf námsmanna á námslánum. Þessu hlutverki hefur sjóðurinn ekki sinnt og fór slík könnun á grunnframfærslu síðast fram árið 1975 fyrir um 30 árum síðan. Lánasjóðurinn þverbrýtur því gegn lagalegri skyldu sinni með því að hafa ekki framkvæmt slíka könnun á grunnframfærslu í tæplega 30 ár.
Fulltrúar nemenda hafa bent á að framfærslan sé ekki í neinu samræmi við þarfir nemenda á háskólastigi í dag og stendur til að hefja könnun á framfærslu námsmanna á þeirra vegum til að fá fram hver hún raunverulega er. Um fjarlægð námslána frá raunveruleikanum má nefna sem dæmi að full lán án tekjuskerðingar eru nú 77.500 kr. og byrja þau að skerðast við 300 þús. kr. frítekjumark sem má segja að virki beinlínis letjandi á námsmenn og geri mörgum ókleift að stunda nám nema fjármagna það að verulegu leyti með rándýrum bankalánum hafi þeir ekki í aðra sjóði að sækja. Jöfnunarsjóðurinn stendur því ekki undir skyldu sinni og brýtur þar að auki gegn lögum LÍN. Því er brýnt að færa lánin til raunveruleikans enda segir í lögum um sjóðinn að námslán skuli nægja námsmanni til að standa undir straum á náms- og framfærslukostnaði meðan á námi stendur. Meginhlutverk Lánasjóðsins er að tryggja jafnrétti til náms óháð efnahag. Sjóðurinn er jöfnunarsjóður sem á að tryggja að enginn þurfi að hætta við nám vegna vanefna eða annarra efnalegra ytri aðstæðna. Því mælist ég eindregið til þess við hæstv. menntmrh. að hún beiti sér fyrir því að Lánasjóður íslenskra námsmanna endurskoði framfærslugrunninn þannig að lán sjóðsins gefi rétta mynd af raunþörf námsmanna fyrir lán til framfærslu og beini ég því þeirri fyrirspurn til hæstv. ráðherra hvort hafinn sé undirbúningur á því að endurskoða framfærslugrunn námslána og ef svo er, hvenær er áætlað að tilbúinn verði nýr grunnur sem viðmið útreikninga á þörf nemenda fyrir námslánum.