Atli Gíslason:
Frú forseti. Ég fagna auðvitað fjölgun menntunarúrræða í laganámi en ég spyr mig um faglega lágmarkssamræmingu og ég hef að gefnu tilefni áhyggjur af henni. Ég hef áhyggjur af mismunandi lágmarkskröfu til menntunar og ég hef ekki síður áhyggjur af mismunandi kröfum sem gerðar eru til prófessora, dósenta og lektora við deildirnar. Ég hef líka áhyggjur af því að lagadeild Háskóla Íslands skuli hafa brugðist við þessari samkeppni, ef ég má orða það svo, með því að minnka kröfur til árangurs á upphafsprófum í lagadeild Háskóla Íslands. Ég hvet hæstv. menntmrh. að huga vandlega að þessum málum og vona að hún deili áhyggjum mínum.