Kjartan Ólafsson:
Herra forseti. Ég vil í upphafi máls míns þakka hv. þm. Margréti Frímannsdóttur fyrir að koma með þessa fyrirspurn. Þetta er málefni sem er okkur Sunnlendingum hjartkært og mikilvægt. Þessi stækkun Sjúkrahúss Suðurlands hefur lengi verið á dagskrá. Málefnið er mjög brýnt. Þetta er langbrýnasta mál varðandi heilsugæslu og opinberar framkvæmdir á Suðurlandi, alveg ljóst að þetta er langmikilvægasta opinbera framkvæmdin.
Allir sem til þekkja vita hvernig ástandið er á Ljósheimum. Það er hús sem er á mörgum undanþágum eins og hér hefur komið fram og ekki til neinnar frambúðar. Þess vegna hvet ég hæstv. heilbrrh. og legg áherslu á að við getum unnið að þessu máli sameiginlega, þingmannahópurinn í heild í Suðurk.