Tilkynning um dagskrá

Mánudaginn 16. febrúar 2004, kl. 15:00:57 (4221)

2004-02-16 15:00:57# 130. lþ. 64.92 fundur 329#B tilkynning um dagskrá#, Forseti HBl
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 130. lþ.

[15:00]

Forseti (Halldór Blöndal):

Um klukkan 3.30 í dag fer fram umræða utan dagskrár um skattgreiðslur erlendra starfsmanna við Kárahnjúkavirkjun. Málshefjandi er hv. þm. Steingrímur J. Sigfússon. Hæstv. fjmrh. Geir H. Haarde verður til andsvara. Umræðan fer fram samkvæmt 1. mgr. 50. gr. þingskapa og stendur í hálfa klukkustund.