Upplýsingasamfélagið

Mánudaginn 16. febrúar 2004, kl. 15:11:24 (4228)

2004-02-16 15:11:24# 130. lþ. 64.1 fundur 322#B upplýsingasamfélagið# (óundirbúin fsp.), forsrh.
[prenta uppsett í dálka] 64. fundur, 130. lþ.

[15:11]

Forsætisráðherra (Davíð Oddsson):

Herra forseti. Skýrslan sem hér er nefnd er ekki í sjálfu sér bein skilaboð til Símans, heldur er almenn stefnumörkun þarna á ferðinni. Ég man ekki betur en að hæstv. samgrh. hafi tiltölulega nýlega svarað spurningum af líku tagi í þinginu og ég geri ekki annað en vísa til þeirra orða sem samgrh. hefur látið falla um málið. Það er að vísu dálítið sniðuglega gert af hv. þm. að koma þessum krók yfir á mig en ég vitna í þau svör sem hæstv. samgrh. hefur gefið í málinu.