Guðjón A. Kristjánsson:
Virðulegi forseti. Ég vil lýsa yfir stuðningi við þetta mál eins og það kemur mér fyrir sjónir. Auðvitað á eftir að fjalla um það í hv. nefnd og þar koma e.t.v. fram einhverjar breytingar eða ábendingar um efni þess. En almennt fagna ég því að hér er verið að fylgja eftir samkomulagi sem gert var við Samtök eldri borgara um að byggja upp öldrunarþjónustu í landinu og aðstöðu á dvalarheimilum og hjúkrunarheimilum og ég sé enga ástæðu til þess að hafna fyrir fram þeim kostum sem hér er boðið upp á, enda trúi ég því að menn séu fyrst og fremst að leitast við að mæta þeirri þörf sem fyrir er í þjóðfélaginu og málið stefni til þess að taka á því. Ég tek því undir það að verið sé að stíga skref sem færir öldrunarmálin í betri farveg og fagna því að þetta frv. er fram komið og treysti því auðvitað að farið verði yfir málið í nefnd. Ég sé ekki að svo komnu máli að í frv. felist nein sérstök hættumerki og vona að það miði að því að taka á þeim vanda sem til staðar er í þjóðfélaginu varðandi vistunarúrræði.