Ásta R. Jóhannesdóttir:
Herra forseti. Ég er einn af flutningsmönnum þessa ágæta frv., um breytingu á lögum um félagslega aðstoð. Eins og kom fram í ræðu hv. þm. Margrétar Frímannsdóttur höfum við lagt þetta mál fram nokkrum sinnum og gefumst ekki upp því að við teljum að þarna sé mjög mikilvægt mál á ferðinni, þ.e. að foreldrar barna sem eru illa farin vegna fíkniefnavanda fái sambærileg réttindi og foreldrar veikra og fatlaðra barna. Börn sem eru illa farin af fíkniefnaneyslu eru börn sem eru orðin veik. Þetta er mjög mikið álag á fjölskyldurnar ekkert síður en að vera með mikið veik börn með aðra sjúkdóma eða fötlun. Foreldrar eru oft og iðulega óvinnufærir þegar slíkt ástand er á heimilinu og oft mikil útgjöld sem falla á heimilið þegar börn og unglingar í fíkniefnavanda eru inni á heimilum.
Ég vil einnig taka undir með hv. þm. Margréti Frímannsdóttur um mikilvægi þess að það þurfi að bæta úrræði fyrir þessi börn. Vegna þess að ég átti sæti í hv. félmn. á síðasta kjörtímabili fengum við í heimsókn til okkar foreldra sem eru í þessum sporum og margir þeirra lýstu því fyrir okkur hversu örvænting þeirra væri mikil og úrræðaleysi í rauninni því að þeir vissu ekkert hvert þeir ættu að snúa sér og það voru ekki neinar leiðir í kerfinu fyrir þetta fólk og börnin þeirra, a.m.k. mikil bið. Sömuleiðis þyrfti mikinn stuðning eftir útskrift til þess að hjálpa þessum börnum að feta sig í lífinu að nýju.
Við höfum lagt til breytingu frá því að frv. kom fram síðast þar sem við leggjum til að umsagnir heimilislæknis, félagsráðgjafa og meðferðarfulltrúa komi með umsókn um umönnunargreiðslurnar. Ég minni á að lög um félagslega aðstoð voru hluti af almannatryggingalögunum til 1993 þegar þeim var skipt upp við það að við urðum aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu, en þá voru þær greiðslur sem ekki greiðast úr landi færðar undir þetta heiti ,,Lög um félagslega aðstoð``. Því hefði ég talið eðlilegast að þetta mál færi til heilbr.- og trn. vegna þess að þessi lög heyra undir heilbrrh.
Herra forseti. Ég vonast til þess að þetta mál fái betri móttökur í heilbr.- og trn. en það hefur fengið í félmn. undanfarið og vonast til þess að menn sjái sér fært að koma til móts við þessa foreldra og vanda þeirra á sama hátt og stuðningur við foreldra fatlaðra og langveikra barna er og að málið komi síðan inn í þingið og verði samþykkt.